fimmtudagur, 12. september 2013

Tiltektar-árátta

Mér hefur alltaf þótt einstaklega gaman að taka til, alveg frá því að ég var lítil stelpa.
Ég hreinlega fúnkera ekki í óreiðu og drasli, og hef aldrei gert það.
Mér finnst fátt leiðinlegra en að fá gesti í heimsókn með stuttum fyrirvara og íbúðin er öll á rúg og stúg. Það er eitthvað svo óheillandi við það, að þurfa að meina fólki aðgang inn í einhver herbergi af því að þau eru öll í drasli.
Á mínu heimili vil ég hafa hreint í öllum herbergjum, og vil helst geta haft opið inn í þau öll - en þau eru höfð lokuð þessa dagana þar sem litla daman valsar inn í þau öll og rótar og tætir.
 Þrátt fyrir að hafa þessa "tiltektar-áráttu" á herðum mér get ég líka verið algjör sóði sjálf. Því jú, það er með mig eins og alla aðra - það koma slæmir dagar inn á milli.
Fyrir mig virkar bara allt mikið betur þegar allt er hreint og fínt - ég er mikið jákvæðari.


sunnudagur, 1. september 2013

Ísafjörður

Til að brjóta upp hversdagsleikann skruppum við litla fjölskyldan í 11 daga frí á hótel mömmu. Þar gat ég sko aldeilis notið þess að vera löt.
 Það er svo afslappandi að skreppa vestur, enda lítið að gera. Við sátum flest alla daga með tærnar upp í loft og horfðum á Neighbours og Bold and the beautiful til skiptis, enda erum við alveg húkt.
Litla daman naut sín líka alveg í botn, enda fékk hún heimsins mestu athyglu frá ömmum og öfum úr öllum áttum.
Veðrið átti stóran þátt í letinni, átinu og sófakúrinu - enda var rigningarsuddi allan tímann.

Svo er skólagleðin byrjuð aftur ! - Það er mikið bras og óskipulag á mér þessa dagana, enda búin að skrá mig í tvo skóla og þarf að segja mig úr öðrum þeirra.
Ég einfaldlega gerði mér ekki grein fyrir því að ég hefði bara 24 tíma í sólahring og það fer ekki vel saman við litlu orkusuguna mína, sem þarf næstum alla mína athygli, alla daga.



Hús og híbýli
bros á góðum degi
mamma með bakkelsið á hreinu

mánudagur, 12. ágúst 2013

Leti

Letin hefur heltekið mig, gjörsamlega. 
Ég er dottin niður í leiðinda rútínu og hef ekki náð að koma neinu í verk. Úfið hár, ósamstæð föt og sukkmatur er eitthvað sem ég hef náð að temja mér ansi vel.
Andlega hliðin er eitthvað sem ég þarf að huga að. Hún hefur verið á niður leið, án þess þó að ég tæki almennilega eftir því. En það er einmitt oft þannig, að einhver annar þarf að hafa orð á hlutunum svo maður átti sig á þeim.
Ég þarf að hætta að sofa á daginn, ég þarf að hætta að ganga um í náttfötunum allan daginn, ég þarf að hætta að ganga um með ógreitt hár, ég þarf að hætta að borða óhollt og ég þarf að hætta að vera löt.
Sú rútína sem ég hef komið sjálfri mér í er engum manni holl !

Mér finnst ég hafa tekið stórt skref þegar ég áttaði mig á hlutunum og ákvað að sækja um vinnu. Ég hef ekki verið á vinnumarkaðinum í næstum tvö ár, en hvort ég fái vinnu er svo annað mál.
Ég þarf bara að koma sjálfri mér í almennilega rútínu og gera "eðlilega" hluti á daginn.


sunnudagur, 21. júlí 2013

Gullfoss og Geysir

Skyndiákvörðun gærdagsins - Skoða Gullfoss og Geysi. 
-Við litla fjölskyldan gerðum okkur ferð til að skoða Gullfoss og Geysi í gærdag. Synd að maður skuli ekki fara oftar að skoða slíkar náttúruperlur sem við Íslendingar eigum.
Við enduðum svo daginn í sundi á Selfossi.

Strokkur að gjósa
allt saman svo fallegt

lítill gígur
fjölskylda
Gullfoss

mæðgur að skoða Gullfoss
love birds
Dalía í sinni fyrstu sundferð

sunnudagur, 14. júlí 2013

Sumarið er tíminn

Fyrir góðan mat og góðar stundir, með þeim sem manni þykir vænt um.
- Í gær buðum við Daníel upp á pönnukökur, franska skúkkulaðiköku og skinkuhorn með kaffinu, allt heimabakað að sjálfsögðu.
Svo var komið að kvöldmatnum, og þá fengum við Jón Hauk, Rut og Jóhann Rúnar í mat.
Í forrétt borðuðum við Tokyo sushi , en það voru Laxa-klettasalats-maki, Kalifornía, laxa- og túnfisk-hosomaki, stekur túnfiskur, Kjúklinga-kastu, avakadó og agúrku-hosomaki, túnabomba og laxa-katsu sem við átum með bestu list öllsömul.
Í aðalrétt borðuðum við svo klassískan hvítlaukshumar og sesam nautaspjót, ásamt meðlæti.
Við vorum að grilla humar og nautaspjót í fyrsta skipti, og það heppnaðist svona líka rosalega vel og allir sátu saddir og sælir eftir þennan kvöldverð.
Ég mát til með að láta uppskriptir af þessu gómsæti fylgja með, en uppskriptirnar fengum við úr Grillréttir Hagkaups.

Klassískur Hvítlaukshumar (fyrir 4)

32 stk humarhalar
300 g ósaltað smjör
10 stk hvítlauksrif
1 búnt steinselja
salt
pipar

Bræðið smjörið í potti. Smjörið skilur sig, efra lagið er fita og neðra lagið er mjólk. Hellið fitunni varlega úr pottinum í skál og skiljið mjólkina eftir í pottinum og hendið henni. Raspið hvítlauksrifin út í smjörið og kryddið með salti og pipar. Kljúfið humarinn eftir endilöngu en skerið þó ekki alveg í gegn. Fletjið humarinn út og hreinsið hann. Leggið humarinn svo á fat með kjöthliðina niður. Hellið hvítlaukssmjörinu yfir humarinn og leyfið honum að marinerast í 30 mínútur þannig að smjörið fari vel inn í kjötið. Grillið svo humarinn á háum hita í 2-3 mínútur á kjöthliðinni, snúið honum við og grillið í 30 sekúndur. Saxið steinseljuna og stráið henni yfir þegar humarinn er tilbúinn.

Sesam Nautaspjót (fyrir 4)

12 stk spjót
600 g nautalund
100 ml sojasósa
60 g sykur
4 msk sesamfræ
20 ml sesamolía
olía til að pensla með
salt
pipar

Snyrtið nautalundina og skerið hana í 2x2 cm bita. Setjið sojasósuna og sykurinn í pott og hitið þar til sykurinn bráðnar. Hellið í skál og bætið sesamfræjunum og sesamolíunni út í. Marinerið kjötið í 1 klukkustund. Penslið með olíu og kryddið með salti og pipar. Þræðið á spjót og grillið á heitu grillinu í 2 mínútur á hvorri hlið.


- Og já, svo festi ég kaup á jakka fyrir helgi sem ég hafði gert dauðaleit á. Ég fann hann hvergi á höfuðborgarsvæðinu nema í extra small, og mig vantaði small.
Ég varð líka frekar fúl þegar afgreiðslukonan í nikeverslun.is sagði mér að hann væri ekki væntanlegur aftur til þeirra.
En svo rakst ég á hann á sportver.is og þau áttu hann til fyrir mig í small þar, svo ég bíð spennt eftir pakka frá Akureyri.




kökuhlaðborð
Dalía ein mætt í sushiveislu
Sushi
Humar, spjót og með því
Spjótin tilbúin
Humar og spjót á grillinu
Þessi lætur vonandi sjá sig eftir helgi 

fimmtudagur, 11. júlí 2013

Tvítug

Ég átti tvítugsafmæli þann 7. Júlí síðastliðinn, og fékk Evu frænku mína til að mynda mig og mína. Eva er áhugaljósmyndari og ég er rosa sátt með útkomuna og langaði að deila nokkrum myndum með ykkur úr myndatökunni.







þriðjudagur, 9. júlí 2013

Íþróttaföt

Stelpan í mér er alltaf að reyna að hætta að versla íþróttafatnað. En hvernig get ég hætt ? - Íþróttaföt heilla mig bara of mikið, þau eru líka svo litrík og falleg. 

En það leiðinlega við þetta alltsaman er að mér finnst mikið auðveldara að opna fataskápinn og klæða mig í eitthvað kósý íþróttadress en að dressa mig fínt upp, ég tala nú ekki um þegar veðrið er svona óspennandi.

-Ég rakst inn á síðu í gær, heilsurækt.is , og sá þar buxur sem ég varð ástfangin af. Ég stóðst ekki mátið og fór og keypti þær áðan og er heldur betur lukkuleg með þær !