sunnudagur, 1. september 2013

Ísafjörður

Til að brjóta upp hversdagsleikann skruppum við litla fjölskyldan í 11 daga frí á hótel mömmu. Þar gat ég sko aldeilis notið þess að vera löt.
 Það er svo afslappandi að skreppa vestur, enda lítið að gera. Við sátum flest alla daga með tærnar upp í loft og horfðum á Neighbours og Bold and the beautiful til skiptis, enda erum við alveg húkt.
Litla daman naut sín líka alveg í botn, enda fékk hún heimsins mestu athyglu frá ömmum og öfum úr öllum áttum.
Veðrið átti stóran þátt í letinni, átinu og sófakúrinu - enda var rigningarsuddi allan tímann.

Svo er skólagleðin byrjuð aftur ! - Það er mikið bras og óskipulag á mér þessa dagana, enda búin að skrá mig í tvo skóla og þarf að segja mig úr öðrum þeirra.
Ég einfaldlega gerði mér ekki grein fyrir því að ég hefði bara 24 tíma í sólahring og það fer ekki vel saman við litlu orkusuguna mína, sem þarf næstum alla mína athygli, alla daga.



Hús og híbýli
bros á góðum degi
mamma með bakkelsið á hreinu

Engin ummæli:

Skrifa ummæli