sunnudagur, 14. júlí 2013

Sumarið er tíminn

Fyrir góðan mat og góðar stundir, með þeim sem manni þykir vænt um.
- Í gær buðum við Daníel upp á pönnukökur, franska skúkkulaðiköku og skinkuhorn með kaffinu, allt heimabakað að sjálfsögðu.
Svo var komið að kvöldmatnum, og þá fengum við Jón Hauk, Rut og Jóhann Rúnar í mat.
Í forrétt borðuðum við Tokyo sushi , en það voru Laxa-klettasalats-maki, Kalifornía, laxa- og túnfisk-hosomaki, stekur túnfiskur, Kjúklinga-kastu, avakadó og agúrku-hosomaki, túnabomba og laxa-katsu sem við átum með bestu list öllsömul.
Í aðalrétt borðuðum við svo klassískan hvítlaukshumar og sesam nautaspjót, ásamt meðlæti.
Við vorum að grilla humar og nautaspjót í fyrsta skipti, og það heppnaðist svona líka rosalega vel og allir sátu saddir og sælir eftir þennan kvöldverð.
Ég mát til með að láta uppskriptir af þessu gómsæti fylgja með, en uppskriptirnar fengum við úr Grillréttir Hagkaups.

Klassískur Hvítlaukshumar (fyrir 4)

32 stk humarhalar
300 g ósaltað smjör
10 stk hvítlauksrif
1 búnt steinselja
salt
pipar

Bræðið smjörið í potti. Smjörið skilur sig, efra lagið er fita og neðra lagið er mjólk. Hellið fitunni varlega úr pottinum í skál og skiljið mjólkina eftir í pottinum og hendið henni. Raspið hvítlauksrifin út í smjörið og kryddið með salti og pipar. Kljúfið humarinn eftir endilöngu en skerið þó ekki alveg í gegn. Fletjið humarinn út og hreinsið hann. Leggið humarinn svo á fat með kjöthliðina niður. Hellið hvítlaukssmjörinu yfir humarinn og leyfið honum að marinerast í 30 mínútur þannig að smjörið fari vel inn í kjötið. Grillið svo humarinn á háum hita í 2-3 mínútur á kjöthliðinni, snúið honum við og grillið í 30 sekúndur. Saxið steinseljuna og stráið henni yfir þegar humarinn er tilbúinn.

Sesam Nautaspjót (fyrir 4)

12 stk spjót
600 g nautalund
100 ml sojasósa
60 g sykur
4 msk sesamfræ
20 ml sesamolía
olía til að pensla með
salt
pipar

Snyrtið nautalundina og skerið hana í 2x2 cm bita. Setjið sojasósuna og sykurinn í pott og hitið þar til sykurinn bráðnar. Hellið í skál og bætið sesamfræjunum og sesamolíunni út í. Marinerið kjötið í 1 klukkustund. Penslið með olíu og kryddið með salti og pipar. Þræðið á spjót og grillið á heitu grillinu í 2 mínútur á hvorri hlið.


- Og já, svo festi ég kaup á jakka fyrir helgi sem ég hafði gert dauðaleit á. Ég fann hann hvergi á höfuðborgarsvæðinu nema í extra small, og mig vantaði small.
Ég varð líka frekar fúl þegar afgreiðslukonan í nikeverslun.is sagði mér að hann væri ekki væntanlegur aftur til þeirra.
En svo rakst ég á hann á sportver.is og þau áttu hann til fyrir mig í small þar, svo ég bíð spennt eftir pakka frá Akureyri.




kökuhlaðborð
Dalía ein mætt í sushiveislu
Sushi
Humar, spjót og með því
Spjótin tilbúin
Humar og spjót á grillinu
Þessi lætur vonandi sjá sig eftir helgi 

1 ummæli: