Mér hefur alltaf þótt einstaklega gaman að taka til, alveg frá því að ég var lítil stelpa.
Ég hreinlega fúnkera ekki í óreiðu og drasli, og hef aldrei gert það.
Mér finnst fátt leiðinlegra en að fá gesti í heimsókn með stuttum fyrirvara og íbúðin er öll á rúg og stúg. Það er eitthvað svo óheillandi við það, að þurfa að meina fólki aðgang inn í einhver herbergi af því að þau eru öll í drasli.
Á mínu heimili vil ég hafa hreint í öllum herbergjum, og vil helst geta haft opið inn í þau öll - en þau eru höfð lokuð þessa dagana þar sem litla daman valsar inn í þau öll og rótar og tætir.
Þrátt fyrir að hafa þessa "tiltektar-áráttu" á herðum mér get ég líka verið algjör sóði sjálf. Því jú, það er með mig eins og alla aðra - það koma slæmir dagar inn á milli.
Fyrir mig virkar bara allt mikið betur þegar allt er hreint og fínt - ég er mikið jákvæðari.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli