Uppskrift (12 stk)
3/4 bolli hveiti
3/4 bolli sykur
1 tsk lyftiduft
1/2 tsk matarsódi
1/4 tsk salt
6 msk kakó
3 msk smjör (brætt)
3 msk vatn (volgt)
6 msk léttsúrmjólk
1 egg
1 eggjahvíta
Aðferð
Öllum þurrefnum er blandað saman í skál og hrært. Í aðra skál set ég svo kakó og smjör og byrja á því að hræra því saman. Það verður að einhvers konar leðju, og þá er eggi, eggjahvítu,vatni og léttsúrmjólk bætt út í. Því er svo öllu hrært saman.
Þessu er svo hellt út í skálina með þurrefnunum og öllu hrært saman og sett í form.
Þær eiga að bakast í 20 mín á 180°C.
Krem
3/4 bolli smjör
3 2/3 bolli flórsykur
2-3 msk mjólk
1 tsk vanilludropar
Aðferð
Þeytið smjörið í 2-3 mín, bætið flórsykri við og þynnið aðeins með mjólk þar til þið fáið rétta þykkt. Þeytið svo í 5 mín.
Ég bætti svo við kremið, rauðum gel matarlit og svo var kreminu sprautað á kökurnar.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli