,,Það er komið ár síðan að ég fékk þessa heilbrigðu og fallegu stelpu í hendurnar. Hún hefur sannalega reynst mér sem áskorun og breytt lífi mínu til hins betra. Hún hefur kennt mér um hvað lífið snýst um, í alvörunni, hún hefur kennt mér þolinmæði, hún hefur kennt mér að vera ábyrgðarfull og hún hefur kennt mér að elska skilyrðislaust.
Fyrsta hjalið, fyrsta brosið, fyrstu orðin og fyrstu skrefin eru minningar sem ég gleymi aldrei.
-Þótt svo að dóttir mín hafi ekki eingöngu veitt mér hamingju og gleði, þá eru andvökunæturnar, frekjuköstin og veikindin allt þess virði. Það þarf bara eitt bros til að gleðja þreytta mömmu á Sunnudagsmorgni, þótt svo að klukkan sé bara sex. Til hamingju með daginn þinn Katrín Dalía. "
-Birt þann 2. Júlí í facebook-færslu.
Einkadóttirin varð eins árs núna 2. Júlí og það var öllu tjaldað til og haldin afmælisveisla með pomp og prakt þann 6. Júlí.
Við vorum með Kello Kitty þema í veislunni og vorum rosalega ánægð með hvernig til tókst.
Dalía klæddist 20 ára gömlum kjól af mér og fékk að sjálfsögðu afmæliskórónu líka.
 |
Hello kitty kaka |
 |
1 árs og hello kitty |
 |
stofan skreytt |
 |
fiðrildi, hangandi skraut, hello kitty blöðrur |
 |
kökuborðið orðið reddý |
 |
fiðrildi
|
 |
kello kitty skraut í loftinu |
 |
blása á kertið |
 |
Prinsessa hjá pabba sínum |
Skemmtilegar myndir og blogg, þið eruð öll heppin að eiga hvort annað að :)
SvaraEyða